Stórsókn í leikskólamálum
Brýnt er að blása til stórsóknar í leikskólamálum. Byggja þarf fleiri leikskóla, ungbarnadeildir og sérhæfða ungbarnaleikskóla samhliða því að fjölga leikskólakennurum. Mikilvægasta verkefnið er að hefja strax byggingu leikskóla í Suðurbæ (Öldutúnsskólahverfi).
Brúum bilið og bætum starfsaðstæður
- Tryggjum öllum börnum leikskóladvöl frá 12 mánaða aldri.
- Bætum kjör og starfsumhverfi leikskólakennara ásamt því að gefa öllu starfsfólki leikskóla tækifæri til menntunar og starfsþróunar.
- Hefjum strax byggingu leikskóla í Suðurbæ (Öldutúnsskólahverfi)
- Opnum Kató aftur sem ungbarnaleikskóla.
- Aukum sjálfstæði og sveigjanleika leikskólakennara í starfi og vinnum að styttingu vinnuvikunnar.