Stóraukum framboð á húsnæði á viðráðanlegum kjörum
Samfylkingin er velferðarflokkur sem leggur áherslu á að allir geti búið í öruggu húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Tryggja þarf nægt framboð af lóðum og bjóða upp á fjölbreytta valkosti á húsnæðismarkaði. Hafnarfjörður hefur dregist aftur úr hvað varðar uppbyggingu á íbúðarhúsnæði og því þarf að breyta.
Fjölbreyttir valkostir
- Tryggjum hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.
- Byggjum upp öruggan leigumarkað samhliða uppbyggingu annarra húsnæðiskosta.
- Tökum höndum saman við félög sem ekki eru rekin í hagnaðarsjónarmiði um uppbyggingu á stúdentaíbúðum, íbúðum fyrir aldraða og tekjulágar fjölskyldur og einstaklinga.