Næst á dagskrá!

xshafnarfjordur.is

 

  1. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi

Guðmundur Rúnar er með doktorspróf í stjórnmálafræði frá LSE, BA próf í stjórnmálafræði frá HÍ og stúdentspróf frá Flensborg. Hann hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2002, formaður fjölskylduráðs frá 2002, sat í stjórn Strætó bs. 2005-2009 og var formaður bæjarráðs 2007-2010. Guðmundur er jafnframt forseti bæjarstjórnar. Guðmundur Rúnar er kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur, félagsfræðingi. Börn: Ólafur Kolbeinn Guðmundsson, f. 1978, Jón Steinar Guðmundsson, f. 1983, Ágústa Mithila Guðmundsdóttir, f. 1998 og Þórdís Timila Guðmundsdóttir, f. 2000.

 

   2. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi
Margrét Gaua er með BA gráðu í uppeldis-, menntunar og atvinnulífsfræðum og diplomamaster í kennslufræðum. Í dag starfar hún sem kennari í Garðaskóla og hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2006, hún er formaður ÍTH og formaður Framkvæmdarráðs. Margrét Gaua er Gift Davíð Arnari Stefánssyni, nema við HÍ og knattspyrnuþjálfara og eiga þau saman tvær dætur, Björk 12 ára og Rósu 3 ½ árs. Von er á því þriðja um miðjan ágúst. Hundarnir Óskar og Flosi og kettirnir Tumi og Bjarni teljast einnig til fjölskyldumeðlima.

 

  3. Gunnar Axel Axelsson, viðskiptafræðingur
Gunnar Axel er 35 ára viðskiptafræðingur og stundar meistaranám í stjórnsýslufræðum við HÍ og starfar sem sérfræðingur í launa- og kjararannsóknum hjá Hagstofu Íslands. Gunnar Axel er kvæntur Katrínu N. Sverrisdóttur leikskólakennara og á hann fjögur börn, Sigrúnu Líf, Daníel Karl , Aðalbjörn og stúlku sem fæddist fyrir nokkrum vikum og hefur ekki fengið nafn. Gunnar Axel sat í miðbæjarnefnd 2006 til 2009 og er hefur verið formaður menningar- og ferðamálanefndar frá árinu 2009.

 

  4. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri
Eyjólfur er 59 ára og er forstjóri Vinnueftirlitsins. Hann er verkfræðingur að mennt en hefur auk þess lokið MBA gráðu í viðskipta- og hagfræði. Eyjólfur er kvæntur Gerði Sigurðardóttur textilkennara og Eiga þau tvö uppkomin börn, Helgu og Baldur Þór. Eyjólfur hefur gegnt stöðu bæjarfulltrúa frá árinu 2010, er formaður Hafnarstjórnar, formaður fræðsluráðs og situr í stjórn HS veitna.

 

  5. Sigríður Björk Jónsdóttir, byggingalistfræðingur

Sigríður Björk er 37 ára gömul með BA gráðu í sagnfræði 1995 frá Háskóla Íslands og MA í hönnunar- og byggingarlistasögu frá Háskólanum í Essex. Árið 2004 lauk hún MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Frá árinu 2001 hefur hún sinnt stundakennslu við Listaháskóla Íslands ásamt því að sinna skrifum og rannsóknum um byggingarlist. Sem stendur sinnir hún sínu fjórða barni í fæðingarorlofi. Hún er gift Magnúsi Árna Magnússyni rektor Háskólans á Bifröst og eiga þau saman fjögur börn á aldrinum 3 mánaða til 13 ára. Sigríður var kjörin í sveitarstjórn Borgarbyggðar fyrir Borgarlistann 2006, var form. menningarnefndar og varaform. skipulags- og byggingarnefndar, sat í stjórn Húsfriðunarsjóðs Borgarbyggðar, var formaður stjórnar Menningarsjóðs Borgarbyggðar, Safnahúss Borgarbyggðar og Landnáms Íslands ehf. Frá 2009 hefur Sigríður verið varamaður í Skipulagsráði Hafnarfjarðar.

 

  6. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Lúðvík er 50 ára gamall og hefur gegnt starfi bæjarstjóra í Hafnarfirði frá árinu 2002 og verið bæjarfulltrúi frá 1994. Lúðvík er með BA gráðu í íslensku og bókmenntum og hefur lokið sveinsprófi í bakstri. Lúðvík hefur starfað við blaðamennsku og var formaður og síðar framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins frá 1979 til 2002. Lúðvík er giftur Hönnu Björk Lárusdóttur og eiga þau þrjá syni, Lárus f. 1984, Brynjar Hans f. 1989 og Guðlaugur Bjarki f. 1996. Lúðvík hefur átt sæti í nefndum Hafnarfjarðarbæjar frá árinu 1986, var formaður Knattspyrnufélagsins Hauka í áratug 1992 – 2002 og formaður Blaðamannafélagsins 1986 – 1998.

 

  7. Guðfinna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi
Guðfinna er 50 ára gömul, matreiðslumeistari og hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2006. Sambýlismaður Guðfinnu er Björn Bárðarson, starfsmaður hjá Marel og á Guðfinna þrjú börn Þórð Ívar 23 ára háskólanema, Álfrúnu Ýr 16 ára framhaldskólanema og Vilborgu Unu 13 ára grunnskólanema. Guðfinna hefur formaður umhverfisnefndar frá 2006 og varaformaður fjölskylduráðs frá sama tíma. Guðfinna sat í bæjarráði 2007-2008 og er varaformaður í stjórn Sorpu. Guðfinna situr jafnframt í stjórn rauða krossins í Hafnarfirði og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir MATVÍS.

 

  8. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Hörður er 48 ára viðskiptafræðingur af endurskoðendasviði og framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands. Hörður á fjórar dætur, Þóru, Þórunni, Dagbjörtu og Vilborgu. Hörður er formaður Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, varaformaður ÍTH og hefur setið í Bygginganefnd, miðbæjarnefnd, Þjónustu-og þróunarráði auk þess að hafa gegnt störfum skoðunarmanns ársreikninga Hafnarfjarðarbæjar. Hörður hefur verið formaður Badmintonfélags Hafnarfjarðar í 20 ár og hef setið í stjórn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar, formaður landsliðsnefndar Badmintonsambands Íslands og setið þar í stjórn.

 

 9. Ragnheiður Ólafsdóttir, íþróttakennari
Ragnheiður er 47 ára íþróttafræðingur, kennari við Viðistaðaskóla í Hafnarfirði og þjálfari hjá frjálsíþróttadeild FH. Ragnheiður er gift Eggerti Ólafi Bogasyni og eiga þau þrjú börn, Boga 18 ára, Heiði Ósk 17 ára og Örvar 10 ára. Ragnheiður hefur verið varabæjarfulltrúi frá 2006 og situr í fjölskylduráði. Hún hefur sinnt starfi unglingalandsliðsþjálfara í frjálsum íþróttum, ásamt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir frjálsíþróttahreyfinguna og FH.

 

  10. Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi
Guðný er 46 ára, menntaður þroskaþjálfi og hefur lokið framhaldsnámi í stjórnun og starfsmannahaldi og MA gráðu í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Guðný er meðferðarráðgjafi í atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu og starfar við greiningu og ráðgjöf hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Guðný hefur einnig starfað að viðamiklu rannsóknarverkefni við að meta stuðningsþörf fullorðinna fatlaðra á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins.Sambýlismaður Guðnýjar er Sigurður Gíslason iðnrekstrarfræðingur. Synir Guðnýjar eru Ragnar Máni 17 ára og Teitur Snær 10 ára. Guðný var formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, og hefur átt sæti í stjórn Samtaka áhugafólks um atferlisgreiningu á Íslandi.

 

  11. Guðjón Sveinsson, forstöðumaður
Guðjón er 63 ára forstöðumaður hjá Vernd fangahjálp og Yogakennari. Sat sem varabæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn frá 1990 til 1998 og einnig í Bygginganefnd Hafnarfjarðar.Var deildarstjóri í Fjarðarkaupum í 18 ár, starfaði erlendis við sölustörf í 5 ár og starfaði við framleiðslustörf eftir nám í Matsveina og veitingaþjónaskóla Íslands. Börn Guðjóns eru, Halldór Rósmundur, Bryndís, Guðjón Ásgeir, Óskar og Dóris Ósk. Guðjón er formaður eldri kylfinga í Golfklúbbnum Keili, er formaður aganefndar Keilis, Sat sem formaður Keilis, var einnig formaður bygginganefndar Keilis og Alþýðuflokks Hafnarfjarðar, starfaði í stjórn Knattspyrnudeildar Hauka og í stjórn Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar. Guðjón hefur einnig sinnt störfum sem knattspyrnuþjálfari.

 

  12. Helena Mjöll Jóhannsdóttir, meðferðarfulltrúi
Helena Mjöll er 49 ára útstillingahönnuður, tækniteiknari og vímuefna– og áfengisráðgjafi. Starfar sem meðferðarfulltrúi hjá Meðferðarheimilinu Krýsuvík og er varabæjarfulltrúi. Helena er gift Hans Unnþór Ólason húsasmíðameistari og innanhússarkitekt og eiga þau 4 börn: Lovísu Dröfn 22ja ára háskólanema í Danmörku, Óla Hreiðar 16 ára menntaskólanema, Bjart Ara 14 ára grunnskólanema og Veigu Dís 11 ára grunnskólanema. Helena var formaður forvarnarnefndar og er varaformaðu
menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar. Helena er formaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar og hef starfað mikið á vettvangi foreldrafélaga.

 

  13. Elín Soffía Harðardóttir, matreiðslumeistari
Elín er 51 árs gömul, matreiðslumeistari, kennir heimilisfræði í Víðistaðaskóla og er í kennsluréttindanámi í H.Í. Elín er gift Sigurjóni Gunnarssyni og á tvo syni þá Tryggva Frey og Gunnar Þór. Elín var formaður ungra jafnaðarmanna og kvenfélags Alþýðuflokksins í Hafnarfirði á sínum yngri árum og sat þá einnig í stjórn SUJ í nokkur ár. Elín tók sæti á Alþingi árið 1991 sem varamaður og hefur átt sæti í fjölmörgum stjórnum og nefndum á vegum Hafnarfjarðarbæjar, þ.á.m. í stjórn Sólvangs og í jafnréttisnefnd.

 

  14. Geir Guðbrandsson, stúdent
Geir er stúdent af náttúrufræðibraut og er í sambandi með Lindu Pálsdóttur. Foreldrar Geirs eru Guðbrandur Sigurbergsson, viðskiptafræðingur og Þórdís Geirsdóttir, afgreiðslukona. Systkini eru Sigurberg Guðbrandsson, nemi og Þráinn Guðbrandsson, Geir er gjaldkeri Ungra jafnaðarmanna.

 

  15. Kristín Gunnbjörnsdóttir, hárgreiðslumeistari
Kristín er 57 ára hárgreiðslumeistari frá Iðnskólanum í Hafnarfirði og glerlistakona. Kristín er gift Ingimari Kristjánssyni, fyrrum verkstjóra hjá Ísal. Og á 3 uppkomin börn, Vilhjálm Gunnbjörn, Önna Maríu, og Ingimar. Kristín er formaður Svdk. Hraunprýði og hefur verið sjálfboðaliði og félagi í Slysavarnafélaginu Landsbjörg í rúm 30 ár og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum, Er meðstjórnandi í stjórn Öldrunarsamtakanna Hafnar og situr í stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirð, er formaður Bandalags kvenna í Hafnarfirði.

 

  16. Jón Grétar Þórsson, æskulýðsstarfsmaður
Jón Grétar er 27 ára stúdent af Náttúrufræðibraut Flensborgarskóla, sonur hjónanna Hafdísar Guðjónsdóttur dósent á menntavísindasviði HÍ og Þórs Bragasonar rafvirkja hjá Bykó.Jón Grétar á eina dóttur, Þórdísi Birtu. Jón er formaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði Hafnarfirði og fyrrum varaformaður og gjaldkeri Félagsins, fyrrum ritstjóri Draupnis, skólablaðs Flensborgara og fyrrum ritari Nemendafélags Flensborgar.

  17. Steinunn Dögg Steinsen, efnaverkfræðingur
Steinunn Dögg er 30 ára gömul og lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1999 og meistaragráðu í efnaverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 2007. Steinunn starfar sem verkfræðingur í Flutningastjórnunardeild Samskipa. Steinunn er í sambúð með Kristbirni Helga Björnssyni sagnfræðingi og eignuðust þau nýlega sitt fyrsta barn. Steinunn situr í stjórn Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, er formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, varamaður í skipulags- og byggingaráði í Hafnarfirði og er varaformaður í Samstarfi, starfsmannafélagi Samskipa og Jónar Transport.

 

 18. Árni Hjörleifsson, rafvirkjameistari
Árni er 62 ára rafvirkjameistari, stundar málaralist og er heimavinnandi. Hann er kvæntur Ingibjörgu Davíðsdóttur skrifstofustjóra í utanríkisráðuneytinu og saman eiga þau Alexöndru Mist 11 ára. Auk þess á Árni 3 uppkomna syni af fyrra hjónabandi; Sigurð Hlyn, Borgar Hjörleif og Árna Inga. Árni var bæjarfulltrúi í Hafnarfirði 1990-1998. Hann hefur einnig verið formaður skipulagsnefndar og skólanefndar Hafnarfjarðar. Árni var formaður sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Hann var gjaldkeri Rafiðnaðarsambands Íslands og formaður FNR á sínum tíma. Árni hefur bæði verið gjaldkeri og formaður Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar auk ýmissa annarra félagsstarfa.

 

  19. Erna Fríða Berg, fv. skrifstofustjóri
Erna Fríða, fyrrverandi skrifstofustjóri á Sólvangi, er gift Ingólfi P. Steinssyni fyrrverandi auglýsingastjóra. Þau eiga sex börn, níu barnabörn og tíu barna-barnabörn. Erna Fríða er formaður Öldungaráðs Hafnarfjarðar, situr í stjórn Öldrunarsamtakanna Hafnar, stjórn Samtaka aldraðra og er varamaður í Hafnarstjórn.  

  20. Gísli Ósvaldur Valdimarsson, bæjarfulltrúi
Gísli er húsasmiður og með meistarapróf í byggingarverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín. Eiginkona hans er Dagbjört Baldursdóttir sjúkraþjálfari á Sólvangi-St. Jósefsspítala og eiga þau 4 dætur á aldrinum þriggja til þrettán ára. Gísli hefur verið bæjarfulltrúi fá árinu 2006, átt sæti í bæjarráði frá árinu 2009 og verið formaður skipulags- og byggingarráðs frá árinu 2006. 

 

 21. Gunnar Svavarsson, bæjarfulltrúi
Gunnar er verkfræðingur og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Hann var þingmaður á árunum 2007-2009 og jafnframt forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Hann er kvæntur Hrönn Ásgeirsdóttur, kennara í Setbergsskóla og búa þau í Áslandi. Börnin eru þrjú, Tinna ´84 , Ásgeir Jóhannes ´91 og Ólöf Rún ´93. Gunnar er sonur Svavars Gests hljóðfæraleikara/útvarpsmanns og Maríu Steingrímsdóttur.
Gunnar hefur gengt fjölmörgum trúnaðarstörfum í félagsmálum, stjórnmálum og verið aðjúnkt við véla- og iðnaðarverkfræðiskor Háskóla Íslands. 

 

 22. Ellý Erlings Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi
Ellý er fyrrverandi bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, skipulags- og byggingarráðs og fræðsluráðs. Hún er með B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands og starfaði áður sem grunnskólakennari. Hún er gift Emil Lárusi Sigurðssyni yfirlækni Heilsugæslunnar Sólvangi, börnin eru þrjú Erling Daði, Guðrún og Kristján Gauti. Foreldrar hennar eru Erling Jóhannesson og Hulda Garðarsdóttir.

 

Samfylkingin Hafnarfirði | Strandgötu 43, 220 Hafnarfjörður | Sími: 565 3113 | xshafnarfjordur@xshafnarfjordur.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is