Næst á dagskrá!

xshafnarfjordur.is
 22.04.2010
 Sóknarfæri í ferðaþjónustu í Hafnarfirði
Rúmlega 17% allra erlendra ferðamanna sem komu til Íslands árið 2008 höfðu viðdvöl í Hafnarfirði, samkvæmt könnun sem menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðabæjar lét framkvæma. Með hliðsjón af heildarfjölda ferðamanna sem kom til landsins má áætla að um 40 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt bæinn okkar það ár. Ef niðurstöður könnunarinnar eru bornar saman við sambærilega könnun frá árinu 2005 þá fjölgaði komum erlendra ferðamanna til Hafnarfjarðar um 20% á tímabilinu. Er þá ótalinn sá fjöldi ferðamanna sem kom með skemmtiferðaskipum til bæjarins á tímabilinu.
Nánar »  
 22.04.2010
 Frábært skólastarf í Hafnarfirði
Undirritaður tók við formennsku í fræðsluráði Hafnarfjarðar í lok febrúar sl. Ég hef því ekki haft mikinn tíma til að kynna mér þennan málflokk sem er umfangsmikill og veltir um 60% af útgjöldum bæjarins. Það blasir þó við að hér í bæ er öflugt og fjölbreytt skólastarf sem við Hafnfirðingar getum verið stoltir af og í skólunum fer fram fjölþætt þróunarstarf sem miðar að bættum árangri.
Nánar »  
 12.04.2010
 Menning í nærsamfélaginu

Menning er skilgreind í sinni víðustu mynd, sem allt sem mennirnir aðhafast. Menning er þó oftar skilgreind þrengra, til dæmis talað um listmenningu, barnamenningu, íþróttamenningu o.s.frv. En því miður er jafnframt oft fjallað um menningu og menningarstarfsemi sem eitthvað ,,aukreitis“ eða ,,til gamans“ en ekki sem alvöru atvinnugrein sem veltir miklum fjármunum og skilar tekjum í þjóðarbúið.

Nánar »  
 23.03.2010
 Sporin hræða
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa undanfarið ritað greinar í Fjarðarpóstinn um erfiða fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar og telur að komin sé tími til hreinsunarstarfa. Samfylkingin er svo sem ekki óvön þeirri vinnu því það hreinsunarstarf sem vinna þurfti eftir meirihlutastarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bænum sem lauk á vormánuðum 2002 var erfitt og óþrifalegt.
Nánar »  

Samfylkingin Hafnarfirði | Strandgötu 43, 220 Hafnarfjörður | Sími: 565 3113 | xshafnarfjordur@xshafnarfjordur.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is