Guðfinna Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi og formaður umhverfisnefndar Hafnarfjarðar verður sérstakur gestur í Kaffisetrinu næsta föstudag á milli klukkan 10 og 11. Allir velkomnir
Framtíðarþing Samfylkingarinnar í Hafnarfirði verður haldið laugardaginn 7. nóvember í Turninum í Firði. Þingið hefst kl. 11 og stendur til kl. 15.00. Boðið verður upp á súpu og heimabakað brauð í hádegishléi. Á þinginu koma bæjarbúar saman til skrafs og ráðagerða um brýnustu verkefnin og leggja fram nýjar hugmyndir um hvert skuli stefna.
Samfylkingin í Hafnarfirði heldur uppá 10 ára afmæli félagsins laugardaginn 7. nóvember í Turninum í Firði Hafnarfirði. Þar ætlum við að borða góðan mat og skemmta okkur saman fram eftir kvöldi. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á netfangið: xshafnarfjordur@xshafnarfjordur.is Miðaverð: 1.900 krónur